
Umhirða og viðhald
Í Nokia Kaleidoscope I fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað
að betri endingu.
•
Alla aukahluti skal geyma þar sem börn ná ekki til.
•
Halda skal Nokia Kaleidoscope I þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar.
•
Ekki má nota Nokia Kaleidoscope I á rykugum og óhreinum stöðum eða geyma það þar.
Færanlegu hlutirnir í því geta skemmst.
•
Ekki má geyma Nokia Kaleidoscope I á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
•
Ekki má geyma Nokia Kaleidoscope I á köldum stað. Þegar það hitnar (upp að eðlilegu
hitastigi) getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
•
Ekki skal reyna að opna Nokia Kaleidoscope I. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt það.
•
Nokia Kaleidoscope I má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld.
•
Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
Nokia Kaleidoscope I.
•
Ekki má mála Nokia Kaleidoscope I. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Ef Nokia Kaleidoscope I vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda þjónustuaðila.
Starfsfólk þar aðstoðar notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.